Skilmálar

Nafn: Bincat ehf.                                                                                                          Heimilisfang: Strandgata 39, 220 Hafnarfirði (Garnbúð Eddu)                                      Símanúmer: 7700883                                                                                                    Netfang: bincat@bincat.is                                                                                              Kennitala: 610722-1990                                                                                                Virðisaukaskattsnúmer: 146015 

Almennir skilmálar:
Bincat ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru: Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir að pöntun er tilbúin. Það getur tekið nokkra daga að undirbúa vöru áður en hún er tilbúin til sendingar. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.  Bincat ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Bincat ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru og sendingakostnaður: Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk. og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. 

Afsláttar- og kynningarkóðar: Bincat getur tímabundið boðið kynningarverð og afslátt, með eða án kynningarkóða. Afslættir með kóða eru almennt eingöngu gildir einu sinni. Þegar kóðinn er notaður verður hann óvirkur.

Að skipta og skila vöru: Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn eða endurgreiðsla ef þess er krafist og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup. Gorilla vöruhús hýsir lagerinn okkar og við bendum ykkur á að skoða þennan hlekk fyrir nánari upplýsingar.

Trúnaður (öryggisskilmálar): Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing: Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Yfirferð á vöru: Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að byrja á því að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu og reikning. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar sem fylgja með vörunni. Ef kaupandi telur að varan sé ekki í samræmi við vörulýsingu þá þarf hann að senda tilkynningu þess efnis með tölvupósti eða hafa samband við Bincat. 

Greiðsla: Kredit- eða debetkort: Greiðsla fer fram á sama tíma og kaupandi skráir kaup sín. Greiðsla með kreditkorti fer fram í gegnum örugga greiðslugátt sem kaupanda er beint sjálfkrafa til þegar hann fyllir út greiðsluupplýsingar. Þegar kaupandi staðfestir upplýsingarnar er greiðslan skuldfærð af kortinu. Einnig er hægt að nýta sér raðgreiðslur með kreditkorti.

Skilmálar Bincat um notkun á vafrakökum („cookies“)

1. Hvað eru vafrakökur?

Vafrakökur eru agnarsmáar textaskrár sem eru geymdar í vafranum þínum. Vafrakökur eru notaðar í margvíslegum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsíðna, til greiningar á notkun vefsíðna og til að beina auglýsingum til ákveðinna hópa eða einstaklinga. Vafrakökur geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar.

2. Notkun Bincat á kökum

Með því að samþykkja skilmála Bincat um notkun á vafrakökum er Bincat m.a. veitt heimild til þess að: bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna, gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum, þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar og birta notendum auglýsingar.

3. Geymslutími

Kökur frá Bincat eru geymdar í allt að 24 mánuði frá því að notandi heimsækir vefsvæði EasyCheese.

4. Slökkva á notkun á kökum

Notendur geta og er ávallt heimilt að stilla vafrann sinn þannig að notkun á kökum er hætt, þannig að þær vistast ekki eða vefvafrinn biður um leyfi notenda fyrst. Slíkar breytingar geta dregið úr aðgengi að tilteknum síðum á vefsvæðinu eða vefsvæðinu í heild sinni og getur haft neikvæð áhrif á heildarvirkni.

Leiðbeiningar um hvernig megi slökkva á kökum eða breyta stillingum um vafrakökur má finna á vefsíðu þíns vafra eða www.allaboutcookies.org.

5. Meðferð Bincat á persónuupplýsingum

Persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á vafrakökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við ákvæði laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Bincat lýsir því yfir að ekki verði unnið með slíkar upplýsingar í öðrum tilgangi en að ofan greinir nema með yfirlýstu samþykki og þá verða upplýsingarnar ekki varðveittar lengur en þörf krefur miðað við tilgang vinnslu.

Persónuupplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema lög kveði á um annað. 

Hvað viltu vita?

Hér fyrir neðan finnur þú svör við þeim spurningum sem við fáum oftast. Ef þú ert að velta fyrir þér einhverju og finnur ekki svarið hér að neðan, vinsamlegast hafðu samband við okkur með því að nota tengiliðaformið hér að neðan.

Finnur þú ekki svar við því sem þú varst að velta fyrir þér? Binkat teymið er tilbúið að hjálpa þér.Við reynum að svara öllum fyrirspurnum innan 24 tíma.
Hafa samband