




Pizzaofn Pro frá Boska
Gerðu hverja kvöldstund að pizzakvöldi! 🍕
BOSKA Viðar Pizzaofninn Pro er nettur en kraftmikill útieldunarofn sem nær allt að 400°C hita og gefur þér stökka og steinbakaða pítsu á aðeins 60–90 sekúndum. Með öflugri hitadreifingu og tvöfaldri brunatækni, býr hann til pítsu sem smakkast eins og hún komi beint úr viðarofni á Ítalíu.
Af hverju er þetta ofninn fyrir þig?
-
Krispí pítsa á 90 sekúndum – hár hiti og snjallt loftstreymi tryggir stökka skorpu
-
Eldað með viðarpallettum (pellets) – náttúruleg og öflug orka, engin þörf á rafmagni eða gasi. ATH palleturnar fylgja ekki með en eru fáanlegar í helstu grillvörubúðum landsins.
-
Snilldarhönnun fyrir ferðalög og geymslu – hægt að fella ofninn saman til að auðvelda flutning
-
Glæsileg hönnun - stílhrein evrópsk eik gefur ofninum fágað og einstakt yfirbragð
-
Snjallt smáatriði – handfang öskubakkans virkar líka sem upptakari!
🔥 Hitar upp í 400°C – með steinbakaðri nákvæmni
Ofninn nær háum hita fljótt en pizzusteinninn sem fylgir (30,5 x 30,5 cm, 1,2 cm þykkur) þarf um 25-30 mínútur til að hitna alveg í gegn og tryggja þannig stökkann og bakaðan botn. Þessi þolinmæði skilar árangri því pizzan mun bragðast eins og hún hafi verið bökuð í pizzaofni í Ítalíu.
Ofninn er með loftræstri einangrun milli innri og ytri hluta hylkisins. Súrefni flæðir stöðugt um í gegnum neðri loftop sem tryggir stöðugan hita og betri nýtni eldsneytisins.
🍕 Fullkominn fyrir útieldun og notalegar kvöldstundir
Þessi pizzaofn er fullkominn í garðinn, á pallinn/veröndina eða í sumarhúsið – og gerir kvöldstundir með fjölskyldu og vinum að dýrmætum stundum. Hver pítsa smakkast eins og hún komi beint úr ekta ítölskum viðarofni – stökk, heit og fullkomin.
BOSKA er þekkt fyrir úrvalsgæði, og þess vegna er þessi ofn hannaður til að endast í mörg ár. Hann kemur meira að segja með lífstíðarábyrgð.
Buon appetito – njóttu steinbakaðrar pítsu, hvar sem er.
